Veriði sæl
og blessuð og gleðilegt nýtt ár 
Ég bloggaði
síðast í upphafi jólafrís og finnst mér því við hæfi að blogga núna
21 degi og jafn mörgum aukakílóum síðar þegar þessi góði tími,
jólafríið er á enda og alvaran tekin við, skóli... jólafríið var
samt magnað (gangi ykkur vel að lesa þetta
allt):
-
Ég skellti mér
í frábæra ferð norður í heimsókn... það var ekki við öðru að búast
en að þetta yrði skemmtileg
heimsókn.
-
Smellti mér á ágætis leikrit
sem leikfélag MA var að sýna, sýninging hefði þó ekki verið söm við
sig án ljósamannsins 
-
Kíktum á Dátann sem hefur
breyst í Dali 
-
Mætti fersk í skólann með
stúlkunum á föstudagsmorgnin, átti að vera grín en endaði með að ég
sat næstum heilan skóladag og á nú bara eftir að prófa eina
námsbraut... enn sátt með að hafa valið náttúrufræðibrautina.

-
Laugardagurinn var bestur, fór
í langa og stranga jólapakkaleit með Sólveigu,
eldaði mat í stelpurnar og svo gerðum við okkur fínar fyrir ball..

-
E-ð bættist við af fólki í íbúð
stelpnanna og drykkjuleikurinn okkar endaði í að við vorum farnar
að þéra hvor aðra og leikurinn farinn að mynna óneitanlega mikið á
breskt teboð, lilliputti úti og hvaðeina sökum furðulegra
reglna...
-
Fórum í Sjallann á Sálina...
það var fínt ball og vel mætt, eiginlega full vel mætt fyrir minn
smekk og voru marblettirnir ófáir sem mér hlotnaðist þarna sökum
troðnings... Troðningurinn tröllreið mannskapnum og allir hrundu í
gólfið og ég var neðst undir öllu, þá leið mér eins og
skötu úr Faxaflóanum sem hafði verið rifin úr sínu
venjulega umhverfi, smellt á dansgólf Sjallans, komin vel á staði í
kæsingu og fannst eins og ekkert byði mín annað en að vera étin af
snaróðum Íslendingum eins og föður mínum á Þorláksmessu.... Þá fékk
ég nóg og fór heim...
-
Keyrði svo spræk heim með
Karen og Sehr groß
sjónvarp í farteskinu...
-
Ragga, Sólveig og Arna
takk fyrir gistinguna og allt
saman bara...
-
Daginn eftir að
ég kom heim hringdi bróðir minn sem hafði sagst ætla að vera í
Ameríku um jólin og bað mig um að sækja sig á flugvöllinn eftir
klukkutíma...
-
Þetta var
heldur betur óvænt og djöfull var ég ánægð að hele famílíen myndi
vera heima um jólin...
-
Hinn bróðirinn
skilaði sér svo nokkrum dögum seinna og rétti jólaandinn var fljótt
kominn á með venjulegum aðferðum okkar systkina til að pirra móður
okkar og skemmdum á eignum heimilisins
Vorum samt ótrúlega
stillt þessi jól.
-
Venjulegt stúss
í kringum þessa hátíð var framið, s.s. venjulegt
hestaeltingavesen,laufabrauðið og jólatrésferðin góða sem að vísu
við Kári bróðir vorum
ein um að fara í og drógum við systkin heim það allra stærsta og
flottasta jólatré í sögu Egilsstaða
5.
-
Það voru fleiri
sem skyluðu sér heim og vöktu upp mikla ánægju hjá mér og var ég
ekki lengi að skella mér út með þeim...
pigerne
-
Farið var á
magnað 2. Í jólum ball með hljómsveitinni Atómstöðinni sem stóð sig með
prýði. Ragnhildur sá
alfarið um myndatökur og hefur víst setið sveitt við að reyna að
senda myndbönd af mér út til Ameríku. Bara til að Dóri geti hlegið að mér

-
Að loknu góðu
balli, langan og góðan dans og eftir að hafa dregið eitt stykki
bróður niður af sviði og fundið skóinn hans (ég greip hinn)
skutlaði elsku Hallveig mér heim... Takk
Hallveig
-
Við
Sólveig og Ragga
létum ekki þar við sitja og ákváðum að framlengja einn
fimmtudagsrúntinn í ball á Eskifirði.... ákváðum að gera okkur
ekkert fínar og fara bara og létum engan vita... Kíktum fyrst í
heimsókn til Imbunnar og héldum svo á
ball...
-
Við vorum
tvímælalaust verst
klæddu manneskjur ballsins en þetta var víst e-ð fínt ball og allir
voru í sínu fínasta pússi...
-
Ballið byrjaði
illa en endaði í ótrúlega góðri skemmtun þar sem að eftir hlé varð
þetta eitt súrrealískasta ball sem ég hef farið
á...
-
það leið varla hálftími án þess
að kona í sebrahestabol
og brjálaðri krísu strunsaði og hrinti okkur frá með tárin í
augunum og alltaf fylgdi e-r karlmaður á eftir að reyna að sætta
hana, sjaldan sami maðurinn.
-
Imba setti sinn svip á kvöldið

-
Einnig gerði Fanney það sem flaug á mig útúr
fatahenginu smellti á mig rembingskossi, hún man ekkert eftir því

-
Ég var á dansgólfinu í mínu
mesta sakleysi að gera það sem fólk á til að gera á dansgólfum,
dansa þegar e-r ofursamkynhneigður gaur hellti
sér yfir mig og sakaði mig um að hafa gert grín að vinkonum hans og
ég ,, gæti sko bara drulla mér út ef ég ætlaði ekki að viðgangast
við þessu” með tilheyrandi handarvingsi stereotýpu homma.. Ég
neitaði þessum ásökunum og við stelpurnar flúðum annað þegar allt
stefndi í að hann færi að lemja mig... það hefði verið svona
kattfæt, von görl end
von vúman stokk in ei mens boddí 
-
Þess má geta að ég hafði aldrei
séð þessar stelpur fyrr, og þá ekki gert grýn að þeim !

-
Kreisí fag ! (ekki fagott eins og ónefndur
fjölskyldumeðlimur vildi halda fram að þýddi hommi í jólamessunni,
ég fullvissaði þann sama um að Britsjanvst Kavoskny væri ekki
að leika á homma, þetta væri
blásturshljóðfæri)
-
Jæja ég ók svo heim með
stúlkurnur eftir að hafa rifið Sólveigu Í svörtum fötum
Súberfan út... þegar ég neitaði að hlusta á annað
vælurómóvangalag með þeim ,, hugsaðu til mín ef þú mátt, óhh hversu
mikið vænt mér finnst að finna straumana” NEI TAKK
!
-
Semst með eindæmum góð ferð

·
Jújú svo komu áramótin
með versta skaupi i minni tíð... Farið var á ball djammað og
tjúttað mikið... Mjög góð mæting og bara gott ball, það var
samt strax búið, annað hvort komum við seint inn, eða það var
bara svona gaman... ég vil giska á seinni
kostinn
·
Ætlanir um að fara í
eftirpartý fóru út um þúfur þegar við Ragga fórum í það starf að
koma einni gellu heillri heim til sín
Og svo löbbuðum við
Ragga í nýstingskulda og segja má hálfnaktar (miðað við
aðstæður) hjem til mig, átum ljúffengar samlokur og smá
franska súkkulaðiköku (hvernig sem við fórum að því að
hafa list á henni) og dröttuðumst til svefns eftir vandasama
og háfaðasama aðgerð í að koma dýnu inní herbergið mitt, púsl
og nætursvefn foreldranna var í bráðri
hættu...
·
Semst árið 2006 hefur
farið vel af stað
·
Dansaði inní nýtt
ár
·
Nokkur gerpi hafa verið
endurheimt af fjörðunum mér til mikillar ánægju

·
Allt að komast í sitt
venjulega form
·
Hestur kominn í hús

·
Held ég hafi nú þegar
fengið hláturskast ársins en helsta afrek ónefnds
fjölskyldumeðlims þessa fyrstu viku ársins var að STURTA NIÐUR GEMSANUM SÍNUM

Gleðilegt nýtt
ár og takk KÆRLEGA fyrir það liðna...
Magna
Pálína